Fréttir

Magnús Már framlengir við Keflavík
Körfubolti | 8. maí 2017

Magnús Már framlengir við Keflavík

Hinn margslungni Keflvíkingur Magnús Már Traustason hefur framlengt samning sínum við Keflavík og verður hann áfram í herbúðum liðsins næstu tvö árin. 
Keflvíkingar geta fagnað þessu enda hefur Magnús vaxið mjög mikið frá því hann gekk til liðs við Keflavík og er orðinn einn af lykilmönnum liðsins. 

Einnig er staðfest að allir íslenskir leikmenn Keflavíkurliðsins frá síðasta tímabili verða áfram næsta vetur.