Fréttir

Lokamót 7.flokks
Karfa: Yngri flokkar | 25. apríl 2017

Lokamót 7.flokks

Sjöundi flokkur drengja lék lokaumferð Íslandsmótsins sunnudaginn 23. apríl. Mótið fór fram hér í Keflavík og léku drengirnir þrjá leiki, unnu tvo og töpuðu einum en sigruðu engu að síður riðilinn þar sem Breiðablik og Valsmenn töpuðu einnig sínum hvorum leiknum. Keflavík fór því upp um riðil á stigamun. Lið Ármanns í Reykjavík tapaði öllum sínum leikjum og Þór Akureyri mætti ekki til leiks.

Lið Keflavíkur var skipað þeim Aðalgeir, Alexander Aroni, Axeli Inga, Finnboga Páli, Loga Þór (innskotsmynd), Magnúsi Þór og Stefáni Jóni.

Myndir Jón Aðalsteinn.
Hér má sjá fleiri myndir frá mótinu sem Jón Aðalsteinn tók.