Fréttir

Landsbankinn áfram aðalstyrktaraðili körfuknattleiksdeildar Keflavíkur
Karfa: Hitt og Þetta | 1. apríl 2015

Landsbankinn áfram aðalstyrktaraðili körfuknattleiksdeildar Keflavíkur

Farsælt samstarf körfuknattleiksdeildar Keflavíkur og Landsbankans í Reykjanesbæ í yfir 20 ár hefur nýlega verið endurnýjað. Í samstarfssamningnum felst að Landsbankinn verður aðalstyrktaraðili körfuknattleiksdeildarinnar næstu tvö keppnistímabil. Það voru Einar Hannesson, útibússtjóri Landsbankans í Reykjanesbæ, og Sævar Sævarsson, varaformaður körfuknatttleiksdeildar Keflavíkur sem undirrituðu samninginn á leik Keflavíkur og Hauka í úrslitakeppni karla.

„Landsbankinn er mjög stoltur bakhjarl karla- og kvennaliðs körfuknattleiksdeildarinnar en bæði liðin hafa verið í eldlínunni undanfarin ár. Að sama skapi tekur samningurinn til barna- og unglingastarfs deildarinnar en það hefur verið stefna útibúsins að styrkja vel við heilbrigt og öflugt uppbyggingarstarf íþróttafélaga á Suðurnesjum,“ segir Einar Hannesson útibússtjóri Landsbankans.

„Við erum afar þakklát fyrir stuðning Landsbankans í gegnum árin. Það er gífurlega mikilvægt fyrir körfuknattleiksdeildina að hafa traustan fjárhagslegan bakhjarl. Með stuðningi sínum gerir bankinn íþróttafólki okkar kleift að leggja stund á íþrótt sína af kappi. Úrslitakeppni meistaraflokkanna er nú í hámæli og hvetjum við félagsmenn okkar og stuðningsmenn til að mæta á völlinn næstu daga og vikur,” segir Sævar Sævarsson, varaformaður körfuknattleiksdeildar Keflavíkur.

Á myndinni, sem tekin var við undirskrift samningsins, eru ásamt þeim Einari og Sævari hinir stórefnilegu unglingalandsliðsmenn Katla Rún Garðarsdóttir, Birna Valgerður Benónýsdóttir, Arnór Sveinsson og Stefan Alexander Ljubicic.