Fréttir

Körfuboltanámskeið fyrir 1. og 2. bekk hefst mánudaginn 22. ágúst
Karfa: Yngri flokkar | 19. ágúst 2016

Körfuboltanámskeið fyrir 1. og 2. bekk hefst mánudaginn 22. ágúst

Mánudaginn 22. ágúst hefst körfuboltanámskeið fyrir drengi og stúlkur í 1. og 2. bekk. Æft verður frá kl. 15.30-16.30 og verður æft frá mánudeginum 22. til fimmtudagsins 25. ágúst og síðan áfram frá mánudeginum 29. ágúst til miðvikudagsins 31. ágúst,  eða alls 7 æfingadaga.

Ekkert kostar á þessar æfingar og er þetta því kjörið tækifæri fyrir unga iðkendur að prófa þessa frábæru íþrótt áður en dagskrá Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur hefst samkvæmt æfingatöflu frá og með 5. september.

Umsjón með æfingunum hefur Kristjana Eir Jonsdóttir og mun hún hafa fleiri sér til aðstoðar.

Barna- og unglingaráð KKDK.