Fréttir

Keflavíkurkonur ferðast yfir Hellisheiðina
Körfubolti | 24. september 2015

Keflavíkurkonur ferðast yfir Hellisheiðina

Í kvöld munu Keflavíkurkonur leika sinn annan leik í fyrirtækjabikarnum en þær fór vel af stað með góðum sigri gegn nágrönnunum úr Njarðvík. Keflavík teflir fram ungu og efnilegu liði en ljóst er að það verður gaman að fylgjast með Keflavíkurkonum í vetur. 

Leikurinn verður í Hveragerði klukkan 19:15 í kvöld og hvetjum við alla til að gera sér ferð yfir Hellisheiðina og styðja konurnar til sigurs. 

Áfram Keflavík!