Fréttir

Keflavík tekur á móti Skallagrím - Usher spilar sinn fyrsta leik
Karfa: Karlar | 8. janúar 2015

Keflavík tekur á móti Skallagrím - Usher spilar sinn fyrsta leik

Jólin eru búin og það þýðir bara eitt; körfuboltaveislan heldur áfram. Keflavík tekur á móti Skallagrím í 12. umferð Domino´s deildar karla föstudaginn 9. janúar í TM-Höllinni. Leikurinn hefst kl. 19.15 en fyrir leik verður grillið tendrað og borgurum flippað svo allir ættu að mæta svangir í TM-Höllina!

Keflavík er sem stendur í 5. sæti deildarinnar með 6 sigra og 5 töp. Leikurinn gegn Skallagrím verður fyrsti leikur Davon Usher en hann kom til liðsins um áramótin. Þá mun Jens Valgeir líklega einnig spila sinn fyrsta leik með Keflavík.

Fjölmennið á leikinn. Styðjum strákana til sigurs en geymum níðglósur um dómara eftir upp á háalofti með innpakkaða jólaskrautinu!