Fréttir

Keflavík semur við unga leikmenn
Körfubolti | 13. október 2016

Keflavík semur við unga leikmenn

Í dag gekk Keflavík frá samningum við fjórar ungar og mjög efnilegar stúlkur sem leikið hafa með Keflavík frá blautu barnsbeini. 

Stelpurnar hafa allar verið í hópi liðsins á þessu tímabili en undirstaða kvennaliðsins eru ungar og efnilegar heimastelpur. Samið var til tveggja ára og verður gaman að fylgjast með þessum stúlkum vaxa og dafna. 

Stelpurnar heita frá vinstri: 
Tinni Björg Gunnarsdóttir, Kamilla Sól Viktorsdóttir, Elsa Albertsdóttir og Birna Valgerður Benónýsdóttir