Fréttir

Keflavík semur við Amin Stevens
Körfubolti | 27. september 2016

Keflavík semur við Amin Stevens

Amin Stevens er rúmlega tveggja metra kraft-framherji sem spilaði í þrú ár með Florida A&M háskólanum (NCAA d1), við góðan orðstír.  Eftir að háskólaferlinum lauk hefur Amin spilað í Slóvakíu, Austuríki og nú síðast í Bundersligunni í Þýskalandi með prýðilegum árangri. Amin er fjölhæfur leikmaður og sterkur í kringum körfuna. Hann frákastar vel og spilar góða vörn. Hann er góður íþróttamaður og mun vonandi nýtast okkur vel á komandi vetri.