Fréttir

Keflavík - Snæfell í undanúrslitum Bikarkeppni kvenna
Körfubolti | 24. janúar 2016

Keflavík - Snæfell í undanúrslitum Bikarkeppni kvenna

Við vonum að menn séu ekki körfubolta-þunnir eftir rosalega Reykjanesbæjarrimmu á föstudaginn síðasta. Fjörið heldur áfram og nú eiga stelpurnar leik.

Það er komið að undanúrslitum bikarkeppninnar þar sem Keflavíkurkonur fá Snæfell í heimsókn. Leikið verður klukkan 19:15 og eins og venjan er verða grillaðir hamborgarar fyrir leik. 

Við hvetjum alla til að mæta og styðja við stelpurnar til að koma þeim alla leið í úrslitaleikinn.

Áfram Keflavík!