Fréttir

Keflavík - Höttur í boði DUUS
Körfubolti | 29. október 2015

Keflavík - Höttur í boði DUUS

Keflavík mætir Hetti í TM höllinni á föstudaginn kl 19:15. Frítt verður á leikinn í boði DUUS húsa og því engin ástæða til að mæta ekki. Grillið verður tendrað og hvetjum við því alla til að mæta snemma og næla sér í föstudags-burgerinn fyrir leik. 

Keflavík hefur farið vel af stað í vetur og fengið mikið lof fyrir flotta liðsheild og vel spilaðan bolta. Fyllum höllina og styðjum okkar menn til sigurs. Áfram Keflavík!