Fréttir

Keflavík - Grindavík í Dominosdeild Karla
Körfubolti | 7. febrúar 2016

Keflavík - Grindavík í Dominosdeild Karla

Keflavík - Grindavík mætst í Dominosdeil Karla mánudagskvöldið 8. febrúar kl 19:15.
Grindvkingar hafa verið á mikilli siglingu eftir að hafa verið í basli framan af vetri en í síðasta leik kjöldrógu þeir Stjörnumenn sem hafa verið í toppbaráttunni framan af vetri. Bæði Keflavík og Grindavík eru með nýja kana í sínum förum sem hafa sitt að sanna. Því má búast við hörku leik og hvetjum við alla stuðningsmenn að mæta á völlinn og styðja sitt lið áfram.
Grillað verður fyrir leik líkt og venjan er svo það er tilvalið að mæta snemma.

Áfram Keflavík!