Fréttir

Hrókeringar í erlendum leikmannamálum
Körfubolti | 28. september 2015

Hrókeringar í erlendum leikmannamálum

Ekkert varð að komu Chukwudiebere Maduabum til landsins. KKDK var hinsvegar með annan leikmann í pípunum, bandaríski leikmaðurinn Earl Brown og er hann nú kominn til landsins. Earl Brown er fæddur árið 1992 og kemur frá Philadelphia. Hann er 1,98 m á hæð og lék í vetur sem forward með St. Francis háskólanum í Bandaríkjunum. 

Eins og fyrr segir er Earl Brown mættur til landsins og byrjaður að æfa með liðinu. KKDK er mjög ánægð með liðsaukann og hlakkar okkur mikið til að starfa með honum í vetur. 

Hér má svo sjá stutta klippu af kappanum