Fréttir

Hörður snýr aftur... aftur
Körfubolti | 25. nóvember 2016

Hörður snýr aftur... aftur

Áttundu umferð Dominosdeildar karla lýkur í kvöld þegar tveir leikir fara fram. Þar á Keflavík leik gegn Haukum en leikið verður í Schenkerhöllinni, Hafnafirði.

Helstu tíðindi fyrir leik kvöldsins er endurkoma Harðar Axels en segja má að hann sé að snúa aftur, aftur til Keflavíkur. Eftir stutt dvöl í Belgíu hefur Hörður tekið þá ákvörðun að koma heim það sem eftir lifir vetrar og mun hann leika með Keflavík út tímabilið. Risastór viðbót við Keflavíkurliðið en allir þekkja hversu megnugur Hörður Axel er, innan sem utan vallar. 

Leikur kvöldsins er eins og áður segir í Shenkerhöllinni og hefjast leikar á hinum almáttuga tíma, 19:15. 

Hvetjum alla til að renna Reykjanesbrautina og styðja strákana til sigurs.
Áfram Keflavík