Fréttir

Frumsýning í kvöld
Körfubolti | 20. október 2014

Frumsýning í kvöld

 

Fyrsti heimaleikur Keflvíkinga í Dominosdeild karla fer fram í TM höllinni í kvöld þegar Stjarnan mætir í heimsókn í lokaleik 2. umferðar.

Leikurinn verður sýndur beint á Stöð2 Sport og eins verður bein tölfræðilýsing frá leiknum á kki.is.  Nú á að vera búið að bæta netsambandið í húsinu þannig að við vonumst til að tölfræðiútsendingin haldi í þetta skiptið.

Af þessu tilefni ætlar Dominos að bjóða  öllum iðkendum körfuknattleiksdeildarinnar í pizzuveislu kl. 18.15 í félagsheimili Keflavíkur í TM höllinni og eins verður Dominos skotið á sínum stað eins og í úrslitakeppninni.

ALLIR Á VÖLLINN Í KVÖLD