Fréttir

Frí rúta á Snæfell - Keflavík á sunndaginn
Körfubolti | 21. apríl 2017

Frí rúta á Snæfell - Keflavík á sunndaginn

Eins og kunnugt er leiðir Keflavík einvígi sitt gegn Snæfell 2 -0. Á sunnudaginn næstkomandi geta Keflavíkurstúlkur því tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í Hólminum þegar liðin mætast í þriðja leiknum.

Að því tilefni hafa Hópferðir Sævars ákveðið að bjóða upp á fría rútuferð í Stykkishólm fyrir stuðningsmenn Keflavíkur. Rútan leggur af stað kl 15:30 frá íþróttahúsi Keflavíkur við Sunnubraut og hvetjum við fólk til að vera mætt í síðasta lagi kl 15:15.

Svo hægt sé að halda utan um fjöldann sem ætlar í rútuna hvetjum við þá sem ætla með að senda póst á Ingvihakonarson@gmail.com eða senda skilaboð á Keflavík Karfan á Facebook

Hlökkum til að sjá alla í Hólminum
Áfram Keflavík!