Fréttir

Forsala á bikarúrslitaleikinn hafin
Karfa: Konur | 13. febrúar 2015

Forsala á bikarúrslitaleikinn hafin

Forsala á bikarúrslitaleik Keflavíkur og Grindavíkur í Poweradebikar kvenna er hafin. Miðinn mun kosta 2000 kr. í forsölu en 2500 kr. á leikdegi. Miðinn gildir á báða úrslitaleikina, í kvenna og karlaflokki. Séu miðar keyptir í forsölu hjá Keflavík renna þeir óskipt til félagsins en séu þeir keyptir af midi.is eða við innganginn á leikdegi skiptist ágóðinn milli þeirra liða sem leika til úrslita.

Miðarnir verða til sölu og afhendingar á leik Keflavíkur og Hamars í TM-Höllinni í Domino´s deild kvenna laugardaginn 14. febrúar kl. 16.30 og á leik Keflavíkur og Tindastóls í TM-Höllinni í Domino´s deild karla sunnudaginn 15. febrúar kl. 19.15. Einnig er hægt að nálgast miða með því að hafa samband við Sævar Sævarsson í síma 869-1926.