Fréttir

Forsala á bikarúrslitaleik hefst eftir helgi
Karfa: Konur | 4. febrúar 2015

Forsala á bikarúrslitaleik hefst eftir helgi

Forsala á bikarúrslitaleik Keflavíkur og Grindavíkur í Poweradebikar kvenna hefst eftir helgi. Miðinn mun kosta 2000 kr. í forsölu en 2500 kr. á leikdegi. Miðinn gildir á báða úrslitaleikina, í kvenna og karlaflokki. Séu miðar keyptir í forsölu hjá Keflavík renna þeir óskipt til félagsins en séu þeir keyptir af midi.is eða við innganginn á leikdegi skiptast þeir milli þeirra liða sem leika til úrslita.

Nánar verður auglýst síðar hvernig nálgast má miða og því rétt að fylgjast með á vefsíðu félagsins eða á stuðningsmannasíðu þess á Facebook!