Fréttir

Foreldrar tóku þátt í körfuboltaæfingu.
Karfa: Yngri flokkar | 28. nóvember 2016

Foreldrar tóku þátt í körfuboltaæfingu.

Foreldrar og synir þeirra sem eru í 7. og 8. flokki (7. og 8. bekkur grunnskólans) mættu, sl. sunnudagsmorgun kl. 09:15, saman á æfingu í íþróttahúsið.

Hitað var létt upp og teknar nokkrar skotkeppnir áður en leikur hófst, en skemmst er frá því að segja að foreldrar unnu leikinn með 6 stigum eftir nokkur átök við syni sína.

Skemmtileg samverustund með drengjunum í íþróttahúsinu.