Fréttir

Erna Hákonardóttir komin heim
Körfubolti | 22. júlí 2016

Erna Hákonardóttir komin heim

Erna Hákonardóttir hefur skrifað undir 2ja ára samning við Keflavík, en samningur þess efnis var undirritaður í dag. Erna er fædd 1993 og spilar sem skotbakvörður, en hún er öllum hnútum kunnug hjá Keflavík þar sem hún lék með félaginu til 17 ára aldurs, en þá hélt hún til Njarðvíkur þar sem hún varð Íslands- og bikarmeistari með félaginu. Erna gekk í raðir Snæfells fyrir 2015 - 2016 tímabilið og landaði með þeim Íslands- og bikarmeistaratitli. Við bjóðum Ernu velkomna aftur heim og óskum henni alls hins besta í baráttunni með Keflavík í vetur.