Fréttir

Dómaranámskeið í Keflavík 25.-27. nóvember
Karfa: Hitt og Þetta | 23. nóvember 2016

Dómaranámskeið í Keflavík 25.-27. nóvember

KKÍ stendur fyrir dómaranámskeiði í Keflavík frá föstudegi til sunnudags, dagana 25.-27. nóvember 2016. Athygli er vakin á að námskeiðin verða ekki í fjarnámi, heldur fer bóklegi hlutinn fram í kennslustofu.  Verklegi hlutinn verður eftir sem áður í íþróttasal.

Síðasti skráningardagur er fimmtudagurinn 24. nóvember.  Námskeiðin standa öllum til boða, veita fullgild dómararéttindi og munu kosta 5.000,- kr.

Bent er á a leikreglur er að finna á kki.is

Skráning er á kki@kki.is og þarf að taka fram nafn, kennitölu, símanúmer, netfang og félag.