Fréttir

Dagskrá Þorrablóts Keflavíkur klár - Hægt að nálgast miða frá og með deginum í dag!
Karfa: Hitt og Þetta | 12. desember 2014

Dagskrá Þorrablóts Keflavíkur klár - Hægt að nálgast miða frá og með deginum í dag!

Dagskrá Þorrablóts Keflavíkur 2015 er orðin fullmótuð. Óhætt er að segja að dagskráin sé stórkostleg og hvert stórskotaliðið á fætur öðru mun sjá um að stemmningin Í TM-Höllinni verði ógleymanleg.

Veislustjóri kvöldsins verður hinn geðþekki Keflvíkingur og fyrrum dagskrárgerðarmaður á RÚV, Guðfinnur Sigurvinsson. Húsið opnar kl. 19.00 og þegar  gestir ganga í salinn og þar til Guðfinnur tekur við veislustjórn munu goðsagnirnar Magnús Þór Sigmundsson og Jóhann Helgasona spila sínar helstu perlur. Þorramaturinn verður auðvitað á sínum stað ásamt einhverjum kræsingum fyrir gikkina en fjórða árið í röð mun knattspyrnudómarinn Magnús Þórisson sjá um matseldina. Keflavíkurannállinn, sá þriðji í röðinni, verður frumfluttur á risaskjám að mat loknum en eins og menn muna vakti annállinn mikla athygli í fyrra enda eintómir snillingar sem að honum koma. Tónlistin tekur svo aftur við að loknum annál en stórsöngvararnir Sigríður Beinteins, Eyþór Ingi og sjálfur Páll Óskar Hjálmtýsson munu stíga á sviðið áður en Ingó Veðurguð endurtekur leikinn frá því í fyrra með brekkusöng sem allir gestir munu að sjálfsögðu taka undir. Að skemmtiatriðum loknum mun svo hefjast dansleikur með Ingó og Veðurguðunum.

Hægt er að nálgast miðana frá og með deginum í dag. Það má gera með því að hafa samband við Guðmund Steinarsson og Jón Norðdal Hafsteinsson (sjá upplýsingar á auglýsingu) eða með því að setja sig í samband við Davíð Þór Jónsson í síma 869-6151. Þá verður einnig hægt að nálgast miða á heimaleik Keflavíkur og Hauka í Domino´s deild karla í körfubolta föstudaginn 19. desember 2014.

BANKAUPPLÝSINGAR: Reikningur: 1125-26-000894 / Kennitala: 510894-2009

 

 Birtir Thorri_A4.jpg