Fréttir

BIKARÚRSLIT: Keflavík - Skallagrímur
Körfubolti | 8. febrúar 2017

BIKARÚRSLIT: Keflavík - Skallagrímur

Keflavíkurstelpurnar hafa öðlast verðskuldaða umfjöllun í vetur fyrir vasklega frammistöðu á vellinum sem hefur skilað þeim alla leið í bikarúrslitaleikinn. Eftir frábæran sigur á Haukum í undanúrslitum mæta þær Skallagrím í úrslitum laugardaginn 11. febrúar kl 13:30. Leikið verður í Laugardalshöll, sjálfri mekkunni.


Forsala miða verður á fimmtudag og föstudag í TM á Hafnagötu 31 milli 8:30 og 16:30. Tryggið ykkur miða í forsölu til að flýta fyrir á leikdegi. Við viljum sjá alla Keflvíkinga fjölmenna í höllina og styðja stelpurnar okkar til sigurs. Keflvíkingar munu leika í hvítu og verða hvítir Keflavíkurbolir til sölu á staðnum fyrir leik.

Fjölmennum í Höllina og sækjum bikarinn heim
Áfram Keflavík!

Hvítir Keflavíkurbolir verða til sölu í höllinni fyrir leik.