Fréttir

Ariana Moorer nýr leikmaður Keflavíkur
Karfa: Konur | 15. nóvember 2016

Ariana Moorer nýr leikmaður Keflavíkur

Ariana Moorer er 170 cm leikstjórnandi sem lék með Virginina í háskólaboltanum í hinni feyki sterku ACC deild. Þar var hún valin í eitt af úrvalsliðum deildarinnar.
Eftir að námi lauk lék hún sem atvinnumaður í efstu deild í Póllandi. Því næst tók við þjálfun auk þess að sjá um afreksbúðir fyrir unga efnilega leikmenn. S.L. ár lék Ariana í Bosníu þar sem hún var valin leikmaður ársins eftir gott gengi með liði sínu. Um leið og við þökkum Dominique Hudson fyrir hennar framlag, bjóðum við Ariana Moorer velkomna til liðs við kvennalið Keflavík og vætnum mikils af henni á komandi leiktíð.