Fréttir

Æfingatafla og skráning veturinn 2018 - 2019
Karfa: Yngri flokkar | 27. ágúst 2018

Æfingatafla og skráning veturinn 2018 - 2019

Æfingatafla Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur er komin út, ekki er þó ólíklegt að hún geti tekið einhverjum breytingum að fenginni reynslu en þær breytingar munu koma fljótt í ljós eftir að æfingar hefjast og er því taflan birt með fyrirvara um breytingar.

Æfingar hefjast mánudaginn 3. september og tökum við vel á móti núverandi iðkendum og bjóðum nýja iðkendur sérstaklega velkomna. Töfluna og þjálfara flokka má nálgast hér.

Skráning iðkenda:

Skráning iðkenda fer fram í gegnum Nóra skráningarkerfið og þurfa allir iðkendur Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur að vera skráðir. Opnað verður fyrir skráningar þriðjudaginn 28.8.2018. Leiðbeiningar um skráningu má sjá hérna . 

Nórakerfið er hægt að nálgast á slóðinni https://keflavik.felog.is/ 

Æfingagjöld 2018-2019

Æfingagjöld eru sem hér segir veturinn 2018-2019 og er æfingatímabilið frá byrjun september 2018 til maí 2019:

Minnibolti  6-7 ára    : 45.000 kr

Minnibolti  8-9 ára    : 52.000 kr 

Minnibolti 10-11 ára : 57.000 kr

7. - 8. flokkur            : 61.000 kr

9. flokkur og eldri     : 65.000 kr 

Veittur er systkinaafsláttur og er hann 15 %.

Við fyrstu skráningu iðkanda fær iðkandi búning frá Barna og unglingaráði Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur honum að kostnaðarlausu. 

Hægt er að velja um greiðslu með kreditkorti eða fá sendan greiðsluseðil í heimabanka. Boðið er uppá að skipta greiðslum niður í allt að 8 greiðslur. 

Leiksskólahópur Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur.

Boðið verður upp á tvö 8 vikna körfuboltanámskeið fyrir börn fædd 2013-2014 í vetur. 

Fyrsta námskeiðið mun hefjast seinnipartinn í september og seinna námskeiðið verður síðan haldið eftir áramót. Nánari tímasetning og upplýsingar um skráningu verður auglýst síðar. 

Gjald fyrir hvort námskeið er 6.000 kr eða samtals 12.000 kr ef skráð er á bæði námskeið.

 

Hlökkum til að sjá sem flesta í salnum enda stefnir í frábæran körfuboltavetur!

Barna og unglingaráð Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur