Fréttir

Æfingatafla og skráning 2020-2021
Körfubolti | 27. ágúst 2020

Æfingatafla og skráning 2020-2021

Æfingatafla Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur er komin út, ekki er þó ólíklegt að hún geti tekið einhverjum breytingum að fenginni reynslu en þær breytingar munu koma fljótt í ljós eftir að æfingar hefjast og er því taflan birt með fyrirvara um breytingar.

Æfingar hefjast skv töflu mánudaginn 31. ágúst og tökum við vel á móti núverandi iðkendum og bjóðum nýja iðkendur sérstaklega velkomna. Töfluna og þjálfara flokka má nálgast hér.

Skráning iðkenda:

Skráning iðkenda fer fram í gegnum Nóra skráningarkerfið og þurfa allir iðkendur Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur að vera skráðir. Opnað hefur verið fyrir skráningu. Leiðbeiningar um skráningu má sjá hérna . 

Nórakerfið er hægt að nálgast á slóðinni https://keflavik.felog.is/ 

Æfingagjöld 2020-2021

Minnibolti  6-7 ára    : 53.500 kr

Minnibolti  8-9 ára    : 61.500 kr 

Minnibolti 10-11 ára : 67.500 kr

7. - 8. flokkur            : 73.500 kr

9. flokkur og eldri     : 77.500 kr 

Veittur er systkinaafsláttur og er hann 20 %.

Við fyrstu skráningu iðkanda að hausti fær iðkandi búning frá Barna og unglingaráði Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur honum að kostnaðarlausu. 

Hægt er að velja um greiðslu með kreditkorti eða fá sendan greiðsluseðil í heimabanka. Boðið er uppá að skipta greiðslum niður í allt að 7 greiðslur. 

Leiksskólahópur Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur.

Verður auglýst síðar.

 

Hlökkum til að sjá sem flesta í salnum enda stefnir í frábæran körfuboltavetur!

Barna og unglingaráð Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur