Fréttir

Æfingabúðir Jenny Boucek í Keflavík 10. – 11. janúar 2015
Karfa: Hitt og Þetta | 14. nóvember 2014

Æfingabúðir Jenny Boucek í Keflavík 10. – 11. janúar 2015

Jenny Boucek fyrrverandi leikmaður Keflavíkur í körfuknattleik, fyrrum WNBA leikmaður og núverandi aðstoðarþjálfari hjá Seattle Storm í  WNBA mun halda æfingabúðir fyrir stúlkur fæddar 2006  og eldri dagana 10. – 11. janúar 2015.   Æfingabúðirnar verða haldnar í Keflavík og mun Jenny verða yfirþjálfari  og stýra þeim með aðstoð reyndra þjálfara og leikmanna.  Æfingabúðirnar eru ætlaðar stúlkum á öllu landinu og úr öllum félögum enda einstakt tækifæri að fá að æfa undir handleiðslu þessa frábæra og reynslumikla þjálfara.  Skráning hefst 1. desember 2014 og þá mun nánara skipulag og verð liggja fyrir.  Gisting verður í boði fyrir þátttakendur sem koma lengra að.  Tilvalin jólagjöf fyrir körfuboltastúlkuna en hægt verður að kaupa gjafabréf til að lauma í jólapakkann.