Fréttir

17. júní kaffihlaðborð KKDK
Karfa: Hitt og Þetta | 15. júní 2015

17. júní kaffihlaðborð KKDK

Hið árlega kaffihlaðborð körfuknattleiksdeildar Keflavíkur verður á sínum stað í Myllubakkaskóla miðvikudaginn 17. júní nk. Gengið er inn á horni Sólvallagötu og Suðurtúns. Þar geta gestir gætt sér á gómsætum veitingum, s.s. heitum réttum, tertum, flatkökum o.fl., ásamt því að rjúkandi heitt kaffi og ískalt gos verður á boðstólnum.

Húsið opnar um kl. 13.30 og er opið fram eftir degi. Körfknatleiksdeild Keflvíkur hvetur sem flesta til að kíkja við og njóta góðra veitinga og góðs félagsskapar á þjóðhátíðardegi Íslendinga.