Fréttir

17. júní kaffi KKDK í Myllubakkaskóla
Karfa: Hitt og Þetta | 16. júní 2014

17. júní kaffi KKDK í Myllubakkaskóla

Hið árlega kaffihlaðborð körfuknattleiksdeildar Keflavíkur verður á sínum stað í Myllubakkaskóla þriðjudaginn 17. júní nk. Þar geta gestir gætt sér á gómsætum veitingum, s.s. heitum réttum, tertum, flatkökum o.fl., ásamt því að rjúkandi heitt kaffi og ískalt gos verður á boðstólnum. Húsið opnar um kl. 13.00 og er opið fram eftir degi.

Körfknatleiksdeild Keflvíkur hvetur sem flesta til að kíkja við og njóta góðra veitinga og góðs félagsskapar á þjóðhátíðardegi Íslendinga.