Fréttir

17. júní Kaffi Keflavíkur
Körfubolti | 12. júní 2017

17. júní Kaffi Keflavíkur

KKDK verður með sitt árlega 17. júní kaffi í Myllubakkaskóla. Húsið opnar klukkan 13:30 og stendur boðið til 16:30. Boðið verður upp á dýrindis bakkelsi ásamt kaffi og fjölbreyttum hressingum fyrir gesti og gangandi. Verðið er 1.500 kr. og fyrir 12 ára og yngri kostar 500 kr.  
Íslands og Bikarmeistarar Keflavíkur munu sjá um veitingarnar og verða á staðnum til að heilsa upp á gesti og gangandi ásamt því að hægt verður að taka myndir með Bikar og Íslandsmeistarabikurunum. 

Hlökkum til að sjá alla
Áfram Keflavík