Fréttir

UMHVERFISDAGUR KEFLAVÍKUR ÍÞRÓTTA- OG UNGMENNAFÉLAGS 2016
Aðalstjórn | 26. apríl 2016

UMHVERFISDAGUR KEFLAVÍKUR ÍÞRÓTTA- OG UNGMENNAFÉLAGS 2016


Keflavík tekur til í nærumhverfi sínu.
 
UMHVERFISDAGUR KEFLAVÍKUR ÍÞRÓTTA- OG UNGMENNAFÉLAGS 2016 

Er í dag þriðjudaginn 26. apríl kl. 17:00 - 18:30.

Það er okkar markmið að vel sé gengið um keppnissvæði og nærumhverfi félagsins, þau séu snyrtileg og okkur til sóma. Viljum við því sýna gott fordæmi með því að efna til umhverfisdags innan félagsins þar sem stjórnarmönnum og öðrum félagsmönnum gefst kostur á að koma og leggja sitt af mörkum. Viljum einnig beina þeim tilmælum til okkar stuðningsmanna og annarra velunnar sem koma og styðja við bakið á iðkendum um að ganga ætíð vel um íþróttasvæðin „Hreint land fagurt land“.
  
Erum í samstarfi við Víkurfréttir , Samkaup , Mylluna, Ölgerðina, Reykjanesbæ og körfuknattleiksdeild Keflavíkur. 
 

Dagskráin: 17:00 – 18:30

 
Mæting í félagsheimilinu okkar Sunnubraut 34 kl.17:00 afhending á ruslapokum
 
Deildir taka til í sínu umhverfi:
 
Aðalstjórnin tekur til í kringum Hringbraut 108.
Knattspyrnudeild tekur til á Hringbrautarsvæðinu kringum knattspyrnuvöllinn og æfingasvæðinu.
Körfuknattleiksdeild tekur til í kringum íþróttahúsið við Sunnubraut
Fimleikadeild tekur til í kringum Íþróttaakademíuna
Sunddeild tekur til í kringum Sundmiðstöðina
Badminton- og blakdeild tekur til í kringum Heiðraskóla
Taekwondodeild tekur til í kringum svæðið sitt að Iðavöllum
Skotdeild tekur til á sínu svæði í Heiði Höfnum
 
Endað með grillveislu í félagsheimili okkar og verður grillið klárt kl. 18:00 þar sem boðið er upp á hamborgara og gos og af sjálfsögðu grillar formaðurinn.

Fyrir hönd Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags
Einar Haraldsson formaður