Fréttir

Umhverfisdagur Keflavíkur 2016
Aðalstjórn | 29. apríl 2016

Umhverfisdagur Keflavíkur 2016

Það er okkar markmið að vel sé gengið um keppnissvæði og nærumhverfi félagsins, þau séu snyrtileg og okkur til sóma. Viljum við því sýna gott fordæmi með því að efna til umhverfisdags innan félagsins þar sem stjórnarmönnum iðendum og öðrum félagsmönnum gefst kostur á að koma og leggja sitt af mörkum. Viljum einnig beina þeim tilmælum til okkar stuðningsmanna og annarra velunnar sem koma og styðja við bakið á iðkendum um gana ætíð vel um íþróttasvæðin „Hreint land fagurt land“.

    
Umhverfisdagur Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags 2016 var þriðjudagurinn 26. apríl.
  
Deildir tóku til í sínu umhverfi:
 
Aðalstjórnin tók til í kringum Hringbraut 108.
Knattspyrnudeild tók til á Hringbrautarsvæðinu kringum knattspyrnuvöllinn og æfingasvæðinu.
Körfuknattleiksdeild tók til í kringum íþróttahúsið við Sunnubraut
Fimleikadeild tók til í kringum Íþróttaakademíuna
Sunddeild tók til í kringum Sundmiðstöðina
Badminton- og blakdeild tók til í kringum Heiðraskóla
Taekwondodeild tók til í kringum svæðið sitt að Iðavöllum
Skotdeild tók til á sínu svæði í Heiði Höfnum
 
Endað var með grillveislu í félagsheimili okkar þar sem boðið er upp á hamborgara og gos og af sjálfsögðu grillaði formaðurinn. 80 stk voru grillaðir.

Hér má sjá myndir frá deginum

Þökkum styrktar aðilum fyrir stuðninginn. Hann skiptir okkur máli.

Reykjanesbær, körfuknattleiksdeild Keflavíkur, Ölgerðin, Myllan og Víkurfréttir

þið sem eigið myndir frá deginum endilega sendið á mig.

Fyrir hönd Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags
Einar Haraldsson formaður