Ragnari Erni Péturssyni veitt Gull-heiðursmerki Keflavíkur
Ragnari Erni Péturssyni veitt Gull-heiðursmerki Keflavíkur
Einar Haraldsson formaður Keflavíkur og Kári Gunnlaugsson varaformaður Keflavíkur heimsóttu Ragnar Örn á heimili hans þriðjudaginn 1. mars til að heiðra hann. Ragnar Örn glímir við veikindi og átti því ekki heimagengt á aðalfund Keflavíkur til að taka á móti viðurkenningunni.
Til hamingju Ragnar Örn.
Aðalstjórn Keflavíkur sendir þér bestu batakveðjur í erfiðum veikindum þínum.
Fyrir hönd Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags.
Einar Haraldsson formaðurMynd: Einar Haraldsson og Ragnar Örn Pétursson