Fréttir

Námskeið Verndum þau
Aðalstjórn | 19. október 2015

Námskeið Verndum þau


Námskeiðið Verndum þau verður haldið

þriðjudaginn 20. október í félagsheimili

Keflavíkur íþróttahúsinu við Sunnubraut 2. hæð.

Námskeiðið hefst kl. 18:00.

Námskeiðið er byggt á efni bókarinnar Verndum þau og fjallar um hvernig bregðast eigi við grun um ofbeldi og

vanrækslu gegn börnum og unglingum. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem starfa með börnum og unglingum

hjá sveitarfélögum, íþróttafélögum, æskulýðsfélögum og öðrum þeim sem áhuga hafa. Æskulýðsvettvangurinn

(ÆV) gerir kröfu um að allir starfsmenn og sjálfboðaliðar innan ÆV sæki námskeiðið.

Höfundar bókarinnar, Ólöf Ásta Farestveit uppeldis- og afbrotafræðingur og Þorbjörg Sveinsdóttir M.Sc. í sálfræði,

sjá um kennslu á námskeiðinu. Báðar starfa þær í Barnahúsi og hafa mikla reynslu af barnaverndarmálum.

Á námskeiðinu er farið yfir:

v Tilkynningaskyldu starfsmanna sem vinna með börnum og unglingum.

v Líkamlegt, andlegt og kynferðislegt ofbeldi og vanrækslu hvers konar.

v Hvernig taka skuli á móti ofbeldisfrásögn. 

v Reglur í samskiptum við börn og ungmenni. 

v Ýmis atriði sem gott er fyrir vinnuveitendur að hafa í huga

v Úrræði sem í boði eru í samfélaginu fyrir börn og unglinga sem eru þolendur ofbeldis

Næsta námskeið verður haldið 20. október

kl. 18.00 – 21.00 Félagsheimili Keflavíkur, Sunnubraut 34, 2. Hæð, 230 Reykjanesbæ.

Skráning og upplýsingar eru í síma 550 – 9803 eða hjá asta@aev.is

 skráningu þarf að koma fram nafn, netfang og starfsvettvangur (aðildarfélag ÆV). Skráningafrestur rennur út 16.

október kl. 16.00.  Náist ekki 12 manna skráning fellur námskeiðið niður. Námskeiðið er þátttakendum að

kostnaðarlausu. Hægt er að festa kaup á bókinni Verndum þau á 2.500kr.

Léttar veitingar í boði og allir velkomnir!