Fréttir

Íþróttakona- og karl Keflavíkur 2015
Aðalstjórn | 30. desember 2015

Íþróttakona- og karl Keflavíkur 2015


Ástrós og Kristófer Íþróttamenn Keflavíkur 2015

 

Taekwondokonan Ástrós Brynjarsdóttir og sundkappinn Kristófer Sigurðsson voru útnefnd íþróttamenn Keflavíkur 2015 úr glæstum hópi íþróttafólks í hófi aðalstjórn Keflavíkur.

 

Ástrós Brynjarsdóttir 

Ástrós hefur verið besti kvenkeppandi þjóðarinnar í taekwondo og hefur átt mjög gott ár. Hún hefur átt stóran þátt í því að koma taekwondo og Keflavík á kortið enda vekur hún athygli hvar sem hún kemur.
Tók þátt í fjölda móta erlendis.
Hefur verið ósigruð á Íslandi og víðar í langan tíma.
Keppti á Norðurlandamótinu þar sem hún sigraði sinn flokk í bardaga og var það hennar þriðji Norðurlandameistaratitil í bardaga, einnig sigraði hún í tækni sem var mjög stór og sterkur flokkur. Varð hún fyrst íslenskra kvenna til að verða Norðurlandameistari í tækni og eini Íslendingurinn sem hefur orðið Norðurlandameistari í bæði bardaga og tækni.
Vann til 10 Gullverðlauna, 2 Silfurverðlauna og 3 Bronsverðlauna.

 

Kristófer Sigurðsson 
Er einn af fremstu sundmönnum Keflavíkur til margra ára. Hann hefur ávallt verið sér og félagi sínu til mikils sóma og verið góð fyrirmynd fyrir yngri sundmenn.
Kristófer á 734 FINA stig fyrir 400m skriðsund á tímanum 4.03,95 á ÍM50 í Reykjavík.
Var í liði Íslands á Smáþjóðaleikunum sem haldnir voru hér á landi í júní. Þar var hann meðal annars í boðsundsveit sem náði 2.sæti.
Vann til  11 Gullverðlaun, 5 silfurverðlauna og 4 bronsverðlauna.
Hann hefur einnig verið í mörgum boðsundssveitum sem unnið hafa til fjölda verðlauna.
Kristófer á gildandi Íslandmet í aldursflokkum í eftirfarandi greinum:
Boðsund 4x100m skriðsund og 4x200m skriðsund í 50m laug.

Íþróttamenn deilda Keflavíkur 2015
 

Knattspyrnukarl: Einar Orri Einarsson

Knattspyrnukona: Kristrún Ýr Hólm

Körfuknattleikskarl: Valur Orri Valsson

Körfuknattleikskona: Sandra Lind Þrastardóttir

Fimleikakarl: Atli Viktor Björnsson

Fimleikakona: Laufey Ingadóttir

Sundkarl: Kristófer Sigurðsson

Sundkona: Stefanía Sigurþórsdóttir

Skotkarl: Theodór Kjartansson

Skotkona: Sigríður Eydís Gísladóttir 

Taekwondokarl: Ágúst Kristinn Eðvarðsson

Taekwondokona: Ástrós Brynjarsdóttir 

Blakkarl: Hjörtur Harðarson

Blakkona: Sæunnn Svana Ríkharðsdóttir

 

Til hamingu öll.

Einar Haraldsson formaður Keflavíkur