Fréttir

Ellert Eiríksson sæmdur Gullheiðursmerki Keflavíkur
Aðalstjórn | 11. maí 2016

Ellert Eiríksson sæmdur Gullheiðursmerki Keflavíkur

Ellerti Eiríkssyni veitt Gull-heiðursmerki Keflavíkur

Einar Haraldsson formaður Keflavíkur sæmdi Ellert Eiríksson Gullheiðursmerki Keflavíkur. Ellert átti ekki heimagengt á aðalfund félagsins vegna veikinda til að taka á móti viðurkenningunni.

Til hamingju Ellert.

Fyrir hönd Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags.

Einar Haraldsson formaður

 

Ellert Eiríksson er Fæddur í Grindavík 01. maí 1938.

Ellert er fyrrum bæjarstjóri í Garði, Keflavík og Reykjanesbæ. Ellert hefur verið  fimleikadeildar Keflavíkur innan handar á  meðan dóttir hans stundaði æfingar og hefur verið fundarstjóri hjá þeim og einnig á aðalfundum félagsins. Ellert er afburða góður fundastjóri sem ég hef lært mikið af. Ellert lætur sig ekki vanta þegar kappleikir eru í gangi, er ávalt mættur til að styðja við sitt lið. Ellert er mikill Keflvíkingur og hefur ávalt hag félagsins í fyrirrúmi

Mynd: Einar Haraldsson og Ellert Eiríksson