ALLIR KEFLVÍKINGAR Á UNGLINGALANDSMÓT 2017 EGILSTÖÐUM
ALLIR KEFLVÍKINGAR Á UNGLINGALANDSMÓT 2017 EGILSTÖÐUM.
Keppni á 20. Unglingalandsmóti UMFÍ í Egilstöðum hefst 3. ágúst næstkomandi og verður því slitið 6. ágúst.
Unglingalandsmót UMFÍ er í samstarfi við ÚÍA Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands um verslunarmannahelgina.
Mótið er fyrir 11-18 ára.
Keflavík íþrótta- og ungmennafélag sér um að greiða þátttökugjaldið fyrir þá aðila sem skrá sig undir merkjum Keflavíkur sem er 7.000 krónur.
Hægt að skrá sig til keppni í fleiri en einni grein.
Þeir sem keppa undir merkjum Keflavíkur verða að vera í Keflavíkurpeysunni og fyrir þá sem eiga ekki peysuna þá er hún til sölu á skrifstofu félagsins og kostar 6.000 krónur.
Opnað hefur verið fyrir skráningu
Nú skráir hver þátttakandi sig sjálfur Skráðu þig hér!
Eftirfarandi texti er tekin af heimasíðu UMFÍ http://www.umfi.is/single-post/2017/07/06/Skráning-í-fullum-gangi-á-Unglingalandsmót-UMFÍ
Skráning er í fullum gangi á Unglingalandsmót UMFÍ. Mótið verður haldið á Egilsstöðum dagana 3.- 6. ágúst. Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands (UÍA) heldur mótið með UMFÍ.
Mótið er fyrir 11-18 ára og þarf aðeins að greiða eitt þátttökugjald. Gjaldið er 7.000 krónur og er fyrir það hægt að skrá sig til keppni í fleiri en einni grein. Þau börn geta komið og keppt á mótinu sem verða 11 ára á árinu. Þau þurfa hvorki að vera skráð í ungmennafélag né íþróttafélag og geta komið hvort þau vilja með öðrum í hópi eða sem einstaklingar og mynda þá hóp með öðrum stökum börnum og ungmennum.
Þetta er 20. Unglingalandsmót UMFÍ. Það hefst 3. ágúst næstkomandi með keppni í golfi og verður því slitið sunnudaginn 6. ágúst.
Gert er ráð fyrir miklum fjölda fólks á Egilsstöðum yfir mótshelgina eða á milli 1.000-2.000 keppendum og aðstandendum þeirra, jafnvel allt upp undir 10.000 manns.
Á Unglingalandsmótinu verður keppt í 23 geysispennandi greinum.
Þetta eru greinarnar:
Boccia - Bogfimi - Fimleikalíf - Fjallahjólreiðar - Frisbígolf - Frjálsar íþróttir - Glíma - Golf - Götuhjólreiðar - Hestaíþróttir - Knattspyrna - Kökuskreytingar - Körfuknattleikur - Motocross - Ólympískar lyftingar - Rathlaup - Skák - Stafsetning - Strandblak - Sund - UÍA þrekmót - Upplestur og Íþróttir fatlaðra.
Úlfur Úlfur og fleiri skemmta
Kvöldvökur verða haldnar mótsdagana á Egilsstöðum og verða þar engin smástirni á ferðinni. Á meðal þeirra tónlistarmanna sem fram koma eru Úlfur Úlfur, Hildur, Aron Hannes, Emmsjé Gauti, hljómsveitirnar Amabadama og Mur Mur, Hafnfirðingurinn Jón Jónsson og fleiri.
Danski sýningarhópurinn sem sló í gegn í Danmark Got Talent mæta á svæðið og sýnir listir sínar. Hópurinn kemur hingað til lands í boði fyrirtækisins Motus.
Einar Haraldsson formaður Keflavíkur.