Fréttir

Aðalfundur Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags 2015
Aðalstjórn | 26. febrúar 2015

Aðalfundur Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags 2015

 

Aðalfundur Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags verður haldinn í dag 26. febrúar kl. 20:00 í félagsheimili Keflavíkur Sunnubraut 34.

Venjuleg aðalfundarstörf.

Í 7. gr. laga félagsins kemur fram að þeir sem gefa kost á sér til formennsku skulu skila inn sínu framboði fimm dögum fyrir aðalfund á skrifstofu félagsins. Sjá nánar í lögum félagsins.

 

Fundurinn er opinn öllum.

Fyrir hönd stjórnar

Einar Haraldsson formaður.

 

úr lögum félagsins.

 

Aðalfundur félagsins.

 

7. gr.

Framboð til formanns skal berast skrifstofu félagsins eigi síðar en 5 dögum fyrir auglýstan aðalfund félagsins. Komi fleiri en eitt framboð til formanns þá skal kosið á milli þeirra sem hafa gefið kost á sér. Ekki er heimilt að koma með tillögur um formann á aðalfundi.

 

8. gr.

Aðalfundur félagsins hefur æðsta vald og ákvörðunarrétt í öllum málum þess.  Skal hann haldinn eigi síðar en 1. mars ár hvert.  Auglýsa skal aðalfundinn opinberlega á heimasíðu félagsins með minnst 2 vikna fyrirvara. Í aðalfundarboði skal kynna dagskrá, fundartíma og fundarstað. Þá skal geta sérstaklega í fundarboði hvenær frestur til að skila inn framboði til formanns rennur út. Aðalfundurinn telst lögmætur ef löglega er til hans boðað.

Tillögum um breytingar á lögum félagsins skal senda aðalstjórn eigi síðar en 3 vikum fyrir aðalfund.  Heimilt er þó að taka fyrir á aðalfundi tillögur til breytinga á lögum félagsins, sem síðar koma fram ef 2/3 hlutar viðstaddra atkvæðisbærra fundarmanna eru því samþykkir.

 

9.gr.

Dagskrá aðalfundar félagsins skal vera sem hér segir:

1. Fundarsetning.

2.    a) Kosinn fundarstjóri

b) Kosinn fundarritari.

3. Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram.

4. Formaður félagsins leggur fram skýrslu aðalstjórnar um starfssemi og framkvæmdir á liðnu starfsári.

5.    a) Gjaldkeri félagsins leggur fram og útskýrir

endurskoðaða reikninga aðalstjórnar og félagsins í heild fyrir liðið starfsár til samþykktar.

b) Lögð fram fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár.

6. Ávörp gesta.

7. Lagðir fram reikningar fastra nefnda til samþykktar.

8. Lagabreytingar sbr. 7. gr. og 10. gr.

9. Kaffi hlé.

10. Kosinn formaður til eins árs.

11. Kosnir 2 menn í stjórn til tveggja ára.

12. Kosnir 3 menn í varastjórn til eins árs.

13. Kosnir 2 skoðunarmenn reikninga og einn til vara.

14. Kosning fastra nefnda er aðalfundur ákveður.

15. Ákveðið félagsgjald.

16. Önnur mál.

17. Fundarslit.

 

10. gr.

Aukaaðalfund félagsins má halda ef aðalstjórn álítur þess þörf eða ef 1/4 atkvæðisbærra fundarmanna á aðalfundi félagsins óska eftir því, enda tilkynni þeir um leið fundarefni það er ræða á. Aukaaðalfundur er lögmætur sé til hans boðað skv. 8. gr. þessara laga. Aukaaðalfundur hefur sama vald og aðalfundur. Lagabreytingar og stjórnarkosningar skulu þó ekki fara fram á aukaaðalfundi.

 

Atkvæðagreiðslur, kjörgengi og félagsgjöld.

11. gr.

Á aðalfundi félagsins ræður einfaldur meirihluti úrslitum mála, nema þegar um er að ræða tillögur til breytinga á lögum félagsins, en þær verða að samþykkjast af 2/3 viðstaddra atkvæðisbærra fundarmanna.

Kosningar skulu vera skriflegar ef þess er óskað. Séu atkvæði jöfn við stjórnarkjör skal kosning endurtekin. Verði þá atkvæði enn jöfn skal hlutkesti ráða.

 

12. gr.

Allir skuldlausir félagsmenn 16 ára og eldri hafa kjörgengi til stjórnarstarfa, tillögurétt, atkvæðisrétt og málfrelsi á aðalfundi félagsins. Sérhver ungmennafélagi hefur málfrelsi og tillögurétt.

 

hér má sjá lög félagsins í heild sinni