Fréttir

Aðalfundi körfunnar frestað
Aðalstjórn | 29. janúar 2019

Aðalfundi körfunnar frestað

Aðalfundi körfunnar frestað.

 

Af ófyrirsjáanlegum  ástæðum er aðalfundi körfuknattleiksdeildar Keflavíkur sem fram átti að fara í kvöld þriðjudaginn 29. Janúar kl. 20:00 frestað til mánudagsins 4. febrúar kl. 20:00 .

Boðað er til aðalfundar körfuknattleiksdeildar Keflavíkur mánudaginn 4. febrúar kl. 20:00 í félagsheimili okkar að Sunnubraut 34 í sal 1 efri hæð.

 

Úr lögum félagsins

Aðalfundir deilda.

20. gr.

Framboð til formanns skal berast skrifstofu félagsins eigi síðar en 5 dögum fyrir auglýstan aðalfund deildarinnar. Komi fleiri en eitt framboð til formanns þá skal kosið á milli þeirra sem hafa gefið kost á sér. Ekki er heimilt að koma með tillögur um formann á aðalfundi deildarinnar.

21. gr.

Aðalfundir deilda félagsins skulu haldnir eigi síðar en 1. febrúar ár hvert. Allir skuldlausir félagsmenn deildarinnar, 16 ára og eldri  hafa atkvæðisrétt og kjörgengi á aðalfundi deildarinnar. Til aðalfundar deildarinnar skal boðað með viku fyrirvara með auglýsingu opinberlega á heimasíðu félagsins. Í aðalfundarboði skal kynna dagskrá, fundartíma og fundarstað. Þá skal geta sérstaklega í fundarboði hvenær frestur til að skila inn framboði til formanns rennur út. Aðalfundur deildar er löglegur ef löglega er til hans boðað.

22. gr.

Dagskrá aðalfunda deilda félagsins skal vera sem hér segir:

1. Fundarsetning.

2.    a) Kosinn fundarstjóri

b) Kosinn fundarritari.

3. Fundargerð síðasta aðalfundar skal leggja fram.

4. Formaður deildar leggur fram skýrslu deildarstjórnar um starfssemina á liðnu starfsári.

5. Gjaldkeri deildar leggur fram og útskýrir endurskoðaða reikninga deildarinnar fyrir liðið starfsár.

6. Ávörp gesta.

7. Kosningar:

a) Kosinn formaður til eins árs.

b) Kosnir 2 meðstjórnendur til tveggja ára.

c) Kosnir 3 menn í varastjórn.

d) Kosnir 2 skoðunarmenn reikninga og einn til vara.

e) Kosið í nefndir og ráð sem aðalfundur ákveður.

8. Ákveðið æfingargjald fyrir næsta starfsár.

9. Lögð fram fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár.

10. Önnur mál.

11. Fundi slitið.

Heimilt er að kjósa færri eða fleiri í stjórn deildar, enda hafi aðalstjórn félagsins samþykkt þá ráðstöfun fyrir aðalfund deildarinnar.

 

Fyrir hönd aðalstjórnar Keflavíkur
Einar Haraldsson formaður Keflavíkur.