Fréttir

Skráningar:
Fimleikar | 20. ágúst 2015

Skráningar:

Búið er að opna fyrir skráningu í strákahópa, krakkahópa, hópfimleikahópa og afrekshópa. Sjá leiðbeiningar hér fyrir neðan. 
Opnað verður fyrir skráningar í áhaldafimleika stúlkna mánudaginn 24.ágúst.

Drengir
Strákar 1 : þeir strákar sem voru í þessum hópi í fyrra skrái sig aftur þar.
Strákar 2 : Þessi hópur er fyrir drengi fædda 2008 og eldri.
Strákar 3: þessi hópur er fyrir drengi fædda 2009
Strákar 4 : þessi hópur er fyrir drengi fædda 2010

Hópfimleikar
H1 : Þær stúlkur sem voru í H1 í vetur skrá sig áfram þar.
H2 : Stúlkur sem voru í H3 í fyrra fara í þennan hóp 2001 – 2002 stúlkur. Sendur verður póstur á foreldra um það í hvaða hóp þeirra stúlka á að fara í .
H3 : Stúlkur sem voru í H3 í fyrra fara í þennan hóp 2003 – 2004 stúlkur. Sendur verður póstur á foreldra um það í hvaða hóp þeirra stúlka á að fara í .
H4 : Stúlkur fæddar 2005 – 2006 skrá sig í þennan hóp.
H5 : Stúlkur fæddar 2007 sem ætla að fara í hópfimleika skrá sig hér. Þær keppa í 5.flokki.
H stökkfimi : Þær stúlkur sem voru í H2 í fyrra skrá sig í þennan hóp, einnig nýjir krakkar fæddir 2000 – 2003. Hér geta drengir einnig komið inn í hópfimleikana sem eru fæddir 2000 – 2003.

Parkour

Því miður verður ekki boðið upp á parkour æfingar þennan veturinn.

Krakkafimleikar

Krakkafimleikar verða í boði á laugardögum í vetur. Þeir eru í boði fyrir börn fædd árið 2011, 2012 og 2013
Hóparnir verða á eftirfarandi tímum :

2013 : 09.00 – 09.50
2012 : 10.00 – 10.50
2011 : 11.00 – 12.00

Fyrsti tíminn verður 12. september og síðasti tímin verður 5. desember, alls eru þetta 13 skipti og kostar námskeiðið 13.000.-
Einnig verður einn hópur í boði fyrir 2011 börn virka daga 2 x í viku. Þessi hópur er einungis fyrir börn sem hafa verið í krakkafimleikum í 1 vetur að lámarki. Opnað verður fyrir skráningu í þennan hóp mánudaginn 24. ágúst.