Fréttir

Nýr stökkþjálfari
Fimleikar | 9. júlí 2016

Nýr stökkþjálfari

Fimleikadeild Keflavíkur hefur nú á dögunum gert samning við nýjan þjálfara í hópfimleikum. 

Þjálfarinn heitir Daniel Bay Jensen og mun vinna við hlið Jóhönnu Runólfsdóttur sem er yfirþjálfari i hópfimleikum. Við erum einstaklega ánægð að fá Daniel í okkar raðir og hlakkar okkur mikið til þess að sjá hópfimleikana halda áfram að vaxa og dafna undir handleiðslu Jóhönnu og Daníels.