Fréttir

Góður árangur á haustmóti.
Fimleikar | 10. nóvember 2014

Góður árangur á haustmóti.

Seinna haustmót fimleikasambands Íslands fór fram nú um helgina í Gerplu. Keppt var í 1,2,3 þrepi íslenska fimleikastigans sem og frjálsum æfingum. Fimleikadeild Keflavíkur sendi 3 keppendur á þetta mót. Stúlkurnar stóðu sig með stakri prýði. Hérna fyrir neðan má sjá úrslitin.

Laufey Ingadóttir keppti í 1.þrepi í 11 ára flokki.
2. sæti á stökki
1.sæti á golfi
3. sæti samanlagt

Alísa Rún Andrésdóttir keppti í 1.þrepi 12 ára og eldri
2.sæti á slá
1.sæti á golfi

Katla Björk Ketilsdóttir keppti í 1.þrepi 12 ára og eldri
1.sæti á stökki

Önnur úrslit má sjá hér:http://score.sporteventsystems.se/Webresult.aspx?id=142