Fréttir

Góð úrslit á Mínervumóti
Fimleikar | 23. maí 2017

Góð úrslit á Mínervumóti

Um helgina fór stór hópur frá fimleikadeild Keflavíkur á Mínervumótið hjá Björkunum í Hafnarfirði.
Okkar stúlkum gekk einstaklega vel á mótinu og sópuðu þær að sér verðlaunum.

Stúlkurnar í K5 kepptu í 5.þrepi létt yngri og lentu þær í 1. Sæti
Íris Sævarsdóttir keppti í 4.þrepi og varð í 2.sæti á gólfi.
Ásdís Birta Hafþórsdóttir keppti í 3.þrepi og lenti í 3.sæti á gólfi.
Emma Jónsdóttir keppti í 3.þrepi og lenti í 2.sæti á stökki og 1.sæti í samanlögðum stigum.
Katrín Hólm Gísladóttir keppti í 3.þrepi og lenti í 1.sæti á slá og 1.sæti á gólfi 
Margrét Júlía Jóhannsdóttir keppti í 3.þrepi og lenti í 3.sæti á sötkki og 3.sæti á slá.
Helen María Margeirsdóttir keppti í 3.þrepi og lenti í 3.sæti á gólfi.