Fréttir

EuroGym 2020
Fimleikar | 6. mars 2020

EuroGym 2020

Eurogym 2020

Eurogym er fimleikahátíð sem haldin er annað hvert ár víðsvegar um Evrópu. Á þessu ári, 2020 verður hátíðin haldin á Íslandi. Hátíðin felur í sér að hópar af fimleikafólki sýna atriði á sviðum sem verða dreifð um Reykjavíkursvæðið. Haldin verður opnunarhátíð og lokahóf eða sýning og þar á milli verða workshop – þar sem þátttakendur sækja allskonar námskeið sem tengjast íþróttaiðkun ekki bara fimleikatengd workshop heldur fjölbreytt tengt hreyfingu og íþróttum.

Eurogym verður haldið dagana 12. – 16. Júlí 2020 og verður hátíðin að mestu leiti dreifð um Laugardalinn. Þátttakendur eru á aldrinum 12 – 18 ára. Áætlaður fjöldi þátttakenda eru um 5000 talsins og koma allstaðar að frá Evrópu.

Hér er linkur á heimsíðu hátíðarinnar sem og upplýsingabæklinga sem gefnir hafa verið út í tengslum við hátíðina. Þar er hægt að finna dagskrá og helstu upplýsingar um hana.

http://www.eurogym2020.com/

https://www.yumpu.com/en/document/read/62690465/eurogym-2020

https://www.yumpu.com/en/document/read/62833875/eurogym-bulletin-2

Keflavík stefnir á að fjölmenna á þessa fimleikahátíð en þetta er gott tækifæri fyrir okkur að taka þátt og auðveldara þar sem þetta er á Íslandi. Við viljum bjóða öllum iðkendum okkar sem eru á aldrinum 12-18 ára að taka þátt. Yngstir fæddir 2008 og þeir elstu 2002. Þessi hátíð leggur upp með að vera fyrir alla, það er engin krafa um getustig í fimleikum til að taka þátt. Forráðamenn iðkenda á þessum aldri eiga að hafa fengið upplýsingapóst um hátíðina. Ef þið hafið frekari spurningar ekki hika við að hafa samband við fimleikar@keflavik.is.

Skráningarfrestur er til 12. mars 2020 og því einungis nokkrir dagar eftir af skráningu.

Það þarf svo að vera búið að greiða 90% af þátttökugjaldi fyrir 12. Apríl.