Fréttir

Bjarni Þór Hólmsteinsson hefur verið valinn í U17 landsliðið
Blak | 7. október 2019

Bjarni Þór Hólmsteinsson hefur verið valinn í U17 landsliðið

 

Brotið hefur verið blað í 6 ára sögu Blakdeildar Keflavíkur en Bjarni Þór Hólmsteinsson hefur verið valinn í U17 landsliðið.

Bjarni Þór hefur ekki æft blak í langan tíma og þó hann sé að koma úr barnastarfi Keflavíkur þá keppti hann síðasta vetur með meistaraflokki karla. Hann er hávaxinn og sterkur leikmaður með blak í blóðinu enda móðir hans lykilleikmaður hjá kvennaliði Keflavíkur. U17 landsliðið fer um miðjan október á NEVZA mótið sem haldið er í Ikast í Danmörku og þar mun Bjarni Þór skapa ómetanlegar minningar.