Keflavík.is - Taekwondo - SsangYongTaeKwon
SsangYongTaeKwon

 

Hvað er SsangYongTaeKwon?

 

  • Vinasamtök Taekwondo-félaga á Íslandi og víðar.

 

  • Félögin fylgja sömu grunnreglum og hugmyndum

við kennslu og iðkun Taekwondo. 

 

  • Félögin hafa sameiginlegar prófkröfur og iðkendur geta tekið próf í hverju sem er af félögunum. 

 

  • Samtökin nota þá tækni sem Kukkiwon gefa út hverju sinni.

 

  • Master Sigursteinn Snorrason hefur meistaragráðu og kennsluréttindi frá Kukkiwon (2. ágúst 2002) og sér um útfærslu og framkvæmd á tækni félaganna.  Hann sér einnig um beltapróf félaganna.

 

Grundvallarhugsunin á bak við samtökin er:

 

·        Samstarf félaga sem byggist á víðsýni og vilja til að kynnast nýjum hugmyndum og aðferðum.  Félögin eru opin fyrir nýjum straumum og stefnum í Taekwondo, sem og í öðrum bardagalistum. Þannig þroska iðkendur félaganna sjálfan sig og þróa Taekwondo áfram.  Hlutverk meistara og yfirkennara ásamt dan-ráði er að halda utan um þessa þróun og tryggja að hún sé ávallt fram á við.

 

·        SsangYongTaeKwon er á engan hátt viðriðin starfsemi TKÍ, ETU eða WTF á annan hátt en sem einstök félög. 

 

·        Markmið SsangYongTaeKwon er að byggja upp Taekwondo á Íslandi og að bæta menntun og starfsumhverfi kennara.  Auk þess beita samtökin sér fyrir sameiginlegum hagsmunum, eins og; aðstöðu félaga, keppnisaðstöðu og -reglum, sameiginlegum æfingabúðum, samskiptum við utanaðkomandi aðila og annað sem viðkemur skipulagi og framgöngu Taekwondo-mála á Íslandi.

 

 

·        SsangYongTaeKwon er stjórnað af dan-ráði sem skipað er fimm dan-beltum úr félögunum.  Dan-gráður kjósa samkvæmt sinni dan-gráðu, (1 atkvæði fyrir 1. dan, 2 fyrir 2. dan o.s.fr.) í stjórn ráðsins sem kosið er í einu sinni á ári.  Ráðið skiptir með sér verkum og skipar í nefndir eins og þurfa þykir.

 

·        SsangYongTaeKwon er öllum opið og opið fyrir öllum.

 

 

Dan-ráðið 2007-2008 skipa:

 

1.      Arnar Snær Valmundsson, 2. dan, Fjölni, formaður

2.      Magnea Kristín Ómarsdóttir, 1. dan Fjölni, ritari

3.      Sigursteinn Snorrason, 4. dan, Fjölni hjálpari

4.      Eduardo Rodriquez, 2. dan HÍ

5.      Trausti Már Valgeirsson, 1. dan, Fjölni

 

 

SsangYongTaeKwon-félögin eru eftirtalin:

 

Fjölnir, stofnað 1994 Af Sigursteini Snorrasyni og Snorra Hjaltasyni.  Yfirkennari Sigursteinn Snorrason 5. dan.

 

Þór, stofnað 1998 af Magnus Rönnlund.  Yfirkennari Rut Sigurðardóttir 1. dan.

 

Keflavík, stofnað 2000 af Sigursteini Snorrasyni og Normandy Del Rosario. Yfirkennari Helgi Rafn Guðmundsson 2. dan.

 

Afturelding, stofnað 2002 af Sigursteini Snorrasyni.  Yfirkennari Arnar Snær Valmundsson 2. dan.

 

Selfoss, stofnað 2002 af Sigursteini Snorrasyni og Magneu Kristínu Ómarsdóttur. Yfirkennari Magnea K. Ómarsdóttir 1. dan.

 

 

HK, endurvakið 2005, af Þorra Birgi Þorsteinssyni og Sigursteini Snorrasyni. Yfirkennari Þorri Birgir Þorsteinsson, 2. dan.

 

Dojang Pequenos stofnað 2005, af Jóni Levy Guðmundssyni

og Sigursteini Snorrasyni.

       Yfirkennari Jón Levy Guðmundsson 3. geup.

 

KR, stofnað 2006 af Sigursteini Snorrasyni. 

      Yfirkennari Arnar Bragason 1. dan.

 

Grindavík, stofnað 2006 af Rut Sigurðardóttur og

     Sigursteini Snorrasyni.  Yfirkennari Rut Sigurðardóttir 1. dan.

 

 Hörður Ísafirði, stofnað 2007 af Hjalta Leifssyni og Sigursteini Snorrasyni

 

 

 

SsangYongTaeKwon-logoið

 

Tvö D tákna andstæður sem koma saman til að mynda heild.

 Í þessu tilviki umgjörðina utan um SsangYongTaeKwon-nafnið.

Undirstaða heildarinnar er tómur bikar, myndlíking fyrir það að vera opinn fyrir nýjum hugmyndum og áherslum. 

Ef þessar andstæður ná saman með undirstöðunni mynda þau hamar, sbr. hamar Þórs.

 

 

 

Tekið af www.ssangyongtaekwon.com