Keflavík.is - Taekwondo - Skráning
Skráning

Skila þarf rafrænni skráningu og greiðslu á hverri önn. Smellið hér til að skrá iðkendur

 

Upplýsingar um skráningu (PDF)

 

Með þessu nýja skráningarkerfi verða skráningar iðkenda markvissari,

allar upplýsingar um iðkendur svo sem sími og netfang eru eins réttar og

þær geta orðið. Þjálfarar geta haldið utan um mætingar iðkenda sinna,

stjórnir deilda hafa betri yfirsýn, innheimta verður skilvirkari og allt

utanumhald með betra móti en áður. Aðeins þarf að innskrá hvern

einstakling einu sinni í kerfið þótt hann æfi hjá fleiri en einni deild innan

Keflavíkur. Kerfið heitir Nóri og er hýst af Dynax www.dynax.is

. Þegar slóðin á heimasíðunni https://keflavik.felog.is/ er valin þarf að

byrja á að haka í reitinn efst "Samþykkja skilmála". Síðan er smellt á

reitinn "Nýskráning". Þá opnast nýr gluggi og færð er inn kennitala

forráðamanns (án bandstriks).

. Næst er smellt á áfram og þá þarf að fylla inn netfang, síma, heimilisfang

og velja sér lykilorð. Ekki þarf að bíða eftir að lykilorðið er samþykkt og

því er það ekki sent á netfang. Veljið því lykilorð sem þið munið eða

geymið það vel.

. Með því að velja "Er jafnframt iðkandi " er hægt að sjá öll námskeið

ætluð fullorðnum á vegum félagsins. Svo er hakað við eða ekki "Ég er

stoltur Keflvíkingur" og er þá viðkomandi kominn sjálfvirkt inn á póstlista

Keflavíkur. Að lokum þarf að samþykkja skilmála og smella á "skrá". Þetta

er bara gert í upphafi við nýskráningu, næst þegar farið er inn í kerfið er

farið í "Innskráning".

. Þá er komin skráning inn í kerfið og aðeins tekur við að skrá börnin inn.

Valið er "Nýr iðkandi" og birtast svo börn viðkomandi og þarf að skrá við

þau netföng, síma og heimilisfang og eru þau síðan valin inn í kerfið. Til

að sjá námskeið sem í boði eru fyrir hvern iðkanda þarf að smella á

"Námskeið/Flokkar í boði" og birtast þá öll námskeið hjá Keflavík sem í

boði eru fyrir þann aldurshóp

. Þá er létt val að velja námskeiðið og skrá inn og greiða. ATH. að aðeins er

hægt að greiða með kreditkorti í kerfinu.