Markmið
Að setja sér markmið er mikilvægt til að vita hvert skal stefna og hvernig skal ná þangað.
Markmið skulu vera
-
S -Specific (sértæk). Eitthvað ákveðið sem þig langar að gera/geta. Að ná færni til að fá nýtt belti, sigra mót, bæta styrk, bæta hraða o.s.f.v. eru dæmi.
-
M - Measurable (mælanleg). Það verður að vera hægt að mæla hvort markmiðinu hafi verið náð.
-
A- Attainable (möguleg). Eitthvað sem er mögulegt að ná á þeim tímaramma sem er settur.
-
R - Realistic (raunhæf). Raunhæft en krefjandi markmið.
-
T- Timely (tímasett). Ákveða hvenær markmiðinu skal vera náð.
Langtímamarkmið
Eitthvað sem næst á löngum tíma, 6 mánuðum - nokkur ár. Hægt er að vera með eitt yfir langtímamarkmið og svo skulu markmiðin verða minni og hnitmiðaðri. Dæmi um langtímamarkmið til margra ára er t.d. að ná svörtu belti, að keppa á heimsmeistaramóti, að komast í splitt/spígat, að geta gert ákveðið margar armbeygjur eða ákveðna tækni sem er erfið.
Skammtímamarkmið
Skammtímamarkmið eru til að styðja langtímamarkmiðið. Löngum tíma er skipt niður í lotur og í hverri lotu skal unnið að því að ná langtímamarkmiðinu með minni markmiðum. Vinna skal í skammtímamarkmiðum oft í hverri viku. Dæmi um skammtímamarkmið eru t.d. að læra ákveðið form fyrir lok þessarar viku, að mæta á ákveðið margar æfingar í þessum mánuði, að vera búinn að bæta tíma sinn í ákveðinni þraut eða þreki o.s.f.v. Hafa skal nokkur skammtímamarkmið sem eru skref í átt að langtímamarkmiðinu. Mikilvægt er að gera áætlun og aðlaga hana svo eftir þörfum.
Muna
-
Tímasetja markmiðin sín, hvenær maður setur sér þau, hvenær maður ætlar að klára þau og hvort það standist
-
Skrifa markmiðin sín niður (skoða hér að neðan)
-
Láta ákveðna aðila sem geta stutt þig vita af markmiðunum
-
Ekki vera með of mörg markmið í einu
-
Ekki hafa áhyggjur þótt allar áætlanir standist ekki, frekar að gera áætlun og skammtímamarkmið sem standast ekki heldur en að gera þau ekki.
-
Aðlaga markmiðin eftir þörfum
-
Skrifa niður hvað gæti tafið fyrir eða komið í veg fyrir að þú náir markmiðunum þínum
-
Hafa markmiðin skýr og einföld
-
Þegar markmiðinu er náð skal setja sér ný
Hér er hægt að prenta út blað með markmiðunum sínum. Hafa þau þar sem þið getið lesið þau og þau hvetja ykkur til að vinna í þeim