Keflavík.is - Taekwondo - Hvatagreidslur
Hvatagreidslur

HVATAGREIÐSLUR Í REYKJANESBÆ

Hvað eru hvatagreiðslur?
Hvatagreiðslur eru styrkir til menningar-, íþrótta- og tómstundastarfs fyrir íbúa í Reykjanesbæ á aldrinum 6 - 18 ára. Greiðslurnar er hægt að nýta til niðurgreiðslu á félags- eða æfingagjöldum í viðurkenndu menningar-, íþrótta- eða tómstundastarfi. Hvatagreiðslur gilda frá ársbyrjun til ársloka. Hafi þær ekki verið nýttar á þeim tíma falla þær niður um áramót.

Styrkurinn gildir jafnframt til niðurgreiðslu gjalda í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
Áttu ungling á aldrinum 14 - 18ára?
Hvatagreiðslur til ungmenna á aldrinum 14 - 18 ára * eru skilyrtar því að foreldrar þeirra sæki fræðslufund hjá Reykjanesbæ um það helsta sem hafa þarf í huga við uppeldi ungmenna. (* Rannsóknir sýna að brottfall ungmenna á þessu aldursbili er hvað mest úr skipulögðu íþrótta- , tómstunda- og menningarstarfi).
Ekki er því hægt að nýta styrkinn fyrir en námskeiði er lokið en þau verða haldin reglulega út árið og sérstaklega auglýst.
Hvernig nýti ég hvatagreiðslur?
Hvatagreiðslurnar eru greiddar á íbúavefnum mittreykjanes.is. Þeir sem ekki hafa þegar fengið lykilorð geta fengið það á vefnum, sent póst á mittreykjanes@reykjanesbaer.is eða haft samband við bæjarskrifstofur í síma 421 6700.
1. Barn er skráð í viðurkennt menningar-, íþrótta- og tómstundastarf. Við skráningu er tekið fram ef nýta á hvatagreiðsluna hjá viðkomandi félagi. Félagið gefur þá út greiðsluseðil fyrir hvatagreiðslunni.

2. Foreldri fær greiðsluseðil.

3. Innskráning á mittreykjanes.is. Slegið er inn kt og lykilorði

 

4. Foreldri velur þvínæst  flipann hvatagreiðslur. Þar koma fram upplýsingar um félög, deildir
og flokka. Ef flipinn sést ekki hafið samband við bæjarskrifstofur í síma 421 6700 eða sendið póst á netfangið hvatagreidslur@reykjanesbaer.is.



5. Valið er viðeigandi félag, deild og flokkur eftir aldri barnsins.
 


6. Setjið inn upplýsingar af greiðsluseðli. Athugið að númer seðils getur ekki verið meira en 6 stafir. Ef upphæð greiðsluseðils er hærri en kr. 7.000 er það sem eftir stendur af kröfunni greitt í heimabanka/banka.

Veljið rétta kennitölu barns lengst til hægri og smellið á áfram.












Smellið á Greiða.
Þar með hefur þú nýtt þér hvatagreiðsluna þína.
Hvað með félög utan Reykjanesbæjar?
Þeir sem æfa með öðrum félögum velja Utan Reykjanesbæjar og skrá hversu mikið af hvatagreiðslunni þeir vilja nota. Athugið að gjaldið kemur í öllum tilfellum fram sem kr. 7.000 en það er einungis til þess að ekki sé ráðstafað hærri upphæð en sem nemur hvatagreiðslu.

Eftir þetta er hægt að fá hvatagreiðsluna endurgreidda á bæjarskrifstofum Reykjanesbæjar gegn framvísun kvittunar frá félaginu.

Frekari upplýsingar umhvatagreiðslurnar eru á mittreykjanes.is.
hvatagreidslur@reykjanesbaer.is