Belti og beltapróf
Í taekwondo er notast við beltakerfi sem sýnir reynslu og iðkun nemenda. Í taekwondo er talað um beltagráður og eru 10 gráður litaðra belta. Á kóresku kallast þau geup.Einnig eru til svartbeltisgráður og kallast þær dan gráður. Beltapróf í taekwondo eru til að prófa kunnáttu og getu nemenda. Nemendur geta farið í beltapróf með u.þ.b. 3ja mánaða millibili (6 mánuði fyrir hærri belti) að gefnu því að þau kunni tæknina sem til þarf og standist aðrar kröfur. Tími á milli beltaprófa er einstaklingsbundinn og fer eftir kunnáttu, getu, mætingu og viðhorfi hvers og eins.
Kunnátta : Þekking á tækninni sem ætlast er til miðað við beltakröfur.
Geta: Að tæknin sé framkvæmd með viðeigandi hreyfingu, krafti, hraða, nákvæmni og líkamsstöðu. Það er ekki nóg að þekkja til tækninnar heldur þarf hún að vera framkvæmd rétt.
Mæting: Að lágmarki skuluð iðkendur mæta á 20 æfingar á milli beltaprófa að rauðu belti og 40 æfingar á milli rauð-svarts. Ath að þótt lágmarksmætingu sé náð jafngildir það ekki því að fá að fara í beltapróf. Í flestum tilfellum hafa og skulu iðkendur hafa mætt á mun fleiri æfingar en lágmark krefur.
Viðhorf : Hegðun og viðhorf til taekwondom, æfinga og umhverfisins hefur áhrif á hvort iðkendur fá að taka próf eða ekki. Það er ekki nóg að geta gert tæknina með lágmarksfyrirhöfn, heldur þarf líka að sýna aga, ákveðni og hjálpsemi.
Fyrir próf er mikilvægt að fara yfir tækniatriðin sín og kunna orðin. Orðalistinn auðveldar heimalærdóminn. Nemendur mæta 15-30 min fyrir próf til að skrá sig og hita upp. Upphitun og undirbúningur fyrir prófið er á ábyrgð próftaka og því skal vera búið að undirbúa sig vel og vera með sín atriði á hreinu. Kennari fer yfir próf fyrirfram, sér í lagi hjá þeim sem taka sitt fyrsta próf. Í prófinu skal öðrum próftökum og prófdómara sýnd virðing. Læti og klósettferðir eru ekki vinsælar í beltaprófum og skal það afgreitt fyrir prófið. Öllum er heimilt að fylgjast með prófunum, en hafa ber í huga að mikla einbeitni þarf til að taka beltapróf og því má ekki trufla próftaka. Ef nemendur ná prófinu sínu fá þeir nýtt belti (eða rönd) og viðurkenningaskjal. Það er ekki sjálfgefið að ná prófi. Þeir sem ná ekki prófi þurfa þá að æfa sig betur og koma aftur í próf seinna eða taka ákveðinn hluta prófsins á æfingu.
Próftakar skulu vera í dobok (taekwondo galla). Öll beltapróf þarf að staðgreiða.
10. geup-gul rönd á hvítu belti
9. geup-Gult belt
8. geup-Appelsínugult belti
7. geup-grænt belti
6. geup-blátt belti
5. geup-rauð rönd á bláu belti
4. geup-rautt belti
3. geup-svört rönd á rauðu belti
2. geup-2 svartar rendur á rauðu belti
1. geup-3 svartar rendur á rauðu belti
1. dan-svart belti
2. dan svart belti
3. dan svart belti
4. dan svart belti (meistaragráða)
osfv.-9.dan, sem er hæðsta beltagráðan. (10 dan er til, en eingungis sem heiðursgráða)
Nánari upplýsingar um prófin fást í beltakröfum og hjá kennara.