Keflavík.is - Sund - Calella 2008
Calella 2008

Á þessa síðu verða settar helstu upplýsingar sem varða ferð ÍRB til Calella júlí - ágúst 2008.

 

Fimmtudagur 24. júlí 2008 - Uppfærður upplýsingamiði, herbergjaskipan og fararstjórar sundmanna

Búið er að raða sundmönnum niður á herbergi og fararstjóra/þjálfara og uppfæra upplýsingamiðann, þar sem m.a. er minnt á að taka með nesti í vélina, vatnsbrúsa á bakkann og sólarvörn ! :-) Mæting í flugstöðina á mánudaginn er sem fyrr segir klukkan 13:20 þar sem hver sundmaður/foreldrar hefur samband við sinn fararstjóra/þjálfara og felur honum umsjón með vegabréfi, fjármunum og hvers kyns lyfjagjöf.
 
 

Mánudagur 21. júlí 2008 - Upplýsingamiði viku fyrir brottför

Búið er að taka saman upplýsingamiða fyrir ferðina, þar sem tekin hafa verið saman ýmis atriði, vinsamlegast skoðið hann vel. Einn sundmaður hefur bæst við flottan hóp, sem er fyrir vikið enn flottari :-) ... hér er hópurinn.
 

Mánudagur 23. júní 2008 - Foreldrafundur / greiðslufyrirkomulag og praktískar upplýsingar

Á foreldrafundi var greiðslufyrirkomulag fastsett. Foreldrar munu greiða með kredit-korti og fá síðan inneign í sundsjóð og styrk frá deildum (20%) færðan inn á reikning. Guðrún gjaldkeri tekur við korta-upplýsingum og reikninga-upplýsingum í Vatnaveröld þriðjudag 24. júní - ÞEIR SEM EKKI HITTA Á GUÐRÚNU FYRIR ÞANN TÍMA ÞURFA AÐ HRINGJA Í HANA FYRIR FIMMTUDAG 26. JÚNÍ, SÍMI 894 2037, en gera má ráð fyrir því að kortin verði gjaldfærð í kringum mánaðarmótin júní - júlí.
 
Á fundinum var upplýst um stöðu á sundsjóð (Linda í síma 846 9000).
 
Ýmis praktísk atriði komu fram:
  • GANGA STRAX ÚR SKUGGA UM AÐ VEGABRÉF SÉU Í LAGI
  • PANTA EVRÓPSKT SJÚKRATRYGGINGARKORT HJÁ TR, sjá t.d. http://www.tr.is/sjalfsafgreidsla/evropskt-sjukratryggingakort/ 
  • Hópurinn sem fer út
  • Hver sundmaður verði með um 3 brúsa af sólarvörn, styrk 25 - 30
  • Hver sundmaður taki með sér after - sun.
  • Sundmenn taki með sér létta bómullaboli til að synda í, til að hlífa húðinni verði sólin sterk
  • Gott að taka með sér ljósar sundhettur
  • Fundurinn ályktaði að gott væri að sundmenn skilji farsíma eftir heima, en fái að nota síma fararstjóra þegar þess þarf
  • Hver sundmaður verði ekki með meiri vasapeninga en 200 evrur
  • Við höfum þrjár einfaldar grunnreglur, sem við að sjálfsögðu fylgjum alltaf, en er hollt að rifja upp: (1) Við drekkum ekki áfengi í ferðum á vegum ÍRB (2) við tökum ekki með okkur gesti inn á hótelherbergi (3) við erum komin inn á hótel ekki síðar en 23:00. Þessar grunnreglur gilda vitaskuld fyrir alla, þ.e.a.s. fararstjóra, þjálfara og sundmenn.
  • Síðast en ekki síst, þá fylgjum við eins og alltaf okkar leiðarljósum sem eru
    • Metnaður - Tökum þetta með stæl eins og allt annað, það er okkar stíll!
    • Léttleiki - Þetta verður skemmtileg ferð í skemmtilegum félagsskap!
    • Samvinna - Við vinnum og leikum saman og fyrir hvort annað, þannig að allir njóti sín og líði vel!
  • Æfingar fyrir ferðina hefjast miðvikudaginn 23. júlí klukkan 16:30
 
 
 Sunnudagur 15. júní 2008 - Greiðslufrestur

Ferðaskrifstofan hefur tilkynnt að greiða þarf ferðina 4 vikum fyrir lok júní. Nánari upplýsingar í kjölfar fundar 23. júní.

Sunnudagur 1. júní 2008 - Hópurinn sem fer út og upplýsingar um flugtíma

Hér er listinn hópinn sem fer til Calella eins og hann lítur út í dag, eftir að hópurinn hefur stækkað aðeins.

Upplýsingar um flugtíma eru sem hér segir:

Mánudagur 28/7 

Flug á Barcelona : FHE288 15:40  -  22:05   
Flugvallarakstur frá Bcn flugvelli til hótelsins á Calella - Fulltrúi ÚÚ tekur á móti hópnum. 
Tékkað inn á hótel og fundur með Jordi varðandi búðirnar. 
Hotel Bernat II**** , gisting í fullu fæði + vatn með mat 

Föstudagur 8/8 .2008

Flugvallarakstur frá hóteli til flugvallar (nema annað ákveðið) 
Flug :  FHE287  14:05  -  16:25

Ef þið eruð með spurningar eða vangaveltur, sendið þá póst á Gumma, gjb@dmm.is

---------------------------

Laugardagur 26. apríl 2008 - Sundmenn sem fara til Calella, breyttur listi

Listinn er hér, hann hefur breyst lítillega, markmiðið er að ganga frá breytingum í næstu viku, eftir það getur orðið erfitt að breyta. Ef þið hafði athugasemdir, sendið þá póst á Gumma, gjb@dmm.is

---------------------------

Föstudagur 23. nóvember 2008 - Sundmenn sem fara til Calella

Þá er greiðslufresturinn liðinn, hér er listi yfir þá sundmenn sem eru á leiðinni til Calella 2008 :-)  Ef þið hafið athugasemdir ... einhvern vantar, einhverjum ofaukið, eða einhver vill komast í frábæra ferð en hefur enn ekki greitt staðfestingargjald ... þá látið okkur vita sem allra fyrst, með því að senda póst á Gumma, gjb@dmm.is

---------------------------

Laugardagur 10. nóvember 2008 - Hægt er að nota "sjóðinn" til að greiða staðfestingargjald

Þeir sem vilja nýta sér sjóð krakkana til að greiða staðfestingargjald þurfa að láta Lindu vita, linda@skn.is og sími 8469000.

---------------------------

Miðvikudagur 7. nóvember 2008 - Frestur staðfestingargreiðslu framlengdur

Við höfum fengið leyfi til að fresta staðfestingagreiðslu til 20. nóvember, en ekki fékkst leyfi fyrir að lækka greiðsluna. Þeir foreldrar sem hafa ekki greitt, hafa því frest til 20. nóvember til að greiða staðfestingargjald og til að koma á framfæri sértækum óskum varðandi ferðatilhögun. Í skjalinu sem lagt var fram 1. nóvember kemur fram hvernig greiðslu skuli háttað, sjá hér að neðan. Vinsamlegast komið séróskum skriflega til þjálfara.

----------------------------

Fimmtudagur 1. nóvember 2008 - Foreldrafundur og fyrsta kynning á ferðinni

Þjálfara og stjórn kynntu ferðina, lagt var fram skjal þar sem koma fram grunnupplýsingar og hvernig staðið ber að staðfesta ferðina með greiðslu. Fjárölfunarnefnd var kosin, en hana skipa Anna María, Laufey, Ásta, Rannveig og Jóhanna. Þær munu vitaskuld verða vel studdar af öðrum foreldrum sem munu leggja þeim lið og taka jákvætt á fjáröflunarverkefnum.

Skjal með grunnupplýsingum um ferð og greiðslu staðfestingargjalds.